Glæsimark Jón Dagur skoraði glæsilegt mark í Íslendingaslag.
Glæsimark Jón Dagur skoraði glæsilegt mark í Íslendingaslag. — Morgunblaðið/Eggert
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson skoraði stórglæsilegt mark er OH Leuven vann 3:0-heimasigur á Eupen í Íslendingaslag í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Skoraði Jón Dagur með stórkostlegu skoti utan teigs í fjærhornið eftir aðeins tveggja mínútna leik

Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson skoraði stórglæsilegt mark er OH Leuven vann 3:0-heimasigur á Eupen í Íslendingaslag í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Skoraði Jón Dagur með stórkostlegu skoti utan teigs í fjærhornið eftir aðeins tveggja mínútna leik. Lék hann fyrstu 72 mínúturnar með Leuven. Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn með Eupen og Alfreð Finnbogason kom inn á sem varamaður á 65. mínútu.