Ole Anton Bieltvedt
Ole Anton Bieltvedt
Síðustu tölur (20.12.) sýna að um 8.000 palestínsk börn hafa verið drepin í árásum Ísraelshers á Gasa og miklu fleiri limlest og særð.

Ole Anton Bieltvedt

Það er undrunarefni að Ísrael skuli vera haft með í margvíslegum viðburðum, íþróttamótum og skemmtanahaldi, knattspyrnumótum og söngvakeppnum, sem kenndir eru við Evrópu og ættu eingöngu að vera fyrir evrópskar þjóðir, því Ísrael liggur í Vestur-Asíu, við botn Miðjarðarhafs, umkringt Egyptalandi, Jórdaníu, Sýrlandi og Líbanon.

Ísrael er þannig auðvitað ekki hluti af Evrópu, eða í Evrópu, heldur hinum megin við Miðjarðarhaf, sem aðskilur Vestur-Asíu og Norður-Afríku frá einmitt Evrópu.

Hví er Ísrael þar með, ein allra þjóða á þessu svæði? Líka má spyrja: Hví er Ísrael með í evrópskri knattspyrnu, Meistaradeild Evrópu?

Þessari spurningu má velta fyrir sér, en líklegt er að sterk viðvera og mikil áhrif gyðinga í Evrópu og reyndar víða um heim, ekki síst í Bandaríkjunum, hafi tryggt þeim þessa sérstöðu, þessi „forréttindi“. Ísrael hefur aðeins notið takmarkaðrar vináttu við nágrannaríkin og varð því að leita lengra eftir samvinnu, félagsskap og vináttu á þessum sviðum.

Nú er það góð alþjóðleg regla að blanda sem minnst saman stjórnmálum annars vegar og íþróttum eða menningar- og skemmtanamálum hins vegar. Á margan hátt eru einmitt þessi samskipti þau sem halda alþjóðasamfélaginu saman. Þau eru því geysiþýðingarmikil.

Það eru þó mörk í öllum málum, og hafa bæði rússneskt íþróttafólk og tónlistarmenn orðið að sæta þátttökubanni meira og minna, t.a.m. nú í Evurovision, vegna þess að Pútín hefur gert sig sekan um óforsvaranlegt og grimmilegt árásarstríð gegn Úkraínu að mati alþjóðasamfélagsins. Þarna hafa verið dregin ákveðin siðferðismörk. Rauð lína.

Það er óumdeilanlegt að árás Hamas á Ísrael 7. október sl. var ómennsk og forkastanleg þó að hún hafi ekki komið úr tómarúmi, eins og aðalritari Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, benti á í ræðu fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, og að Ísrael, eins og öll sjálfstæð og fullvalda ríki, hefði fyllsta rétt til að verja sitt land og fólk, en gagnárásin, hefndin, virðist hafa farið yfir öll mennsk, siðferðisleg og ásættanleg mörk.

Gömul réttlætis- og refsiregla sem hefur verið höfð í hávegum um aldir og árþúsund, m.a. sem hluti helstu trúarbragða, segir: „Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“.

Þessi regla á að tryggja að refsing eða hefnd jafngildi broti eða sök, að þar sé jafnræði á milli. Refsing á og má ekki ganga lengra en brot. Þetta hefur verið talið réttlæti.

Gagnárás og refsingu Ísraelshers hefur hins vegar frekar mátt kenna við reglu sem héti „tennur-fyrir-tönn-og-augu-fyrir-auga“, því þótt brotið hafi verið illt og heiftarlegt hefur refsingin, hefndin, verið margföld að umfangi, þunga og djöfulgangi. Tíföld í mannslífum, þar af mikill hluti börn, unglingar, konur og gamalmenni.

Síðustu tölur (20.12.) sýna að um 8.000 þúsund palestínsk börn hafa verið drepin í árásum Ísraelshers á Gasa og miklu fleiri limlest og særð. Að auki hafa tæp 100 börn verið drepin á Vesturbakkanum, en þar er ekki Hamas-liðum fyrir að fara og ekkert stríð gegn þeim í gangi heldur eru þar vel vopnaðir ísraelskir landtökumenn að herja á vopnlausa Palestínumenn, líka konur og börn eins og sjá má, í tilraunum sínum til að hrekja þetta fólk úr húsum sínum og af löndum sínum svo þeir, landtökumennirnir, geti sjálfir hirt þessar eignir fyrir ekkert.

Þarna hefur grimmdin og ómennskan, tillitsleysið gagnvart lífi, limum og velferð annarra, gengið allt of langt, allar línur Sameinuðu þjóðanna og allra helstu mannúðar- og læknasamtaka heims, Rauða krossins og Rauða hálfmánans, öll alþjóðalög, svo og mótmæli og tilmæli flestra þjóðarleiðtoga og áhrifamanna, 153 þjóða á Allsherjarþingi SÞ 12. desember sl., verið hunsaðar með öllu.

Og fyrir mér er vondur þefur af því að af þeim níu þjóðum sem stóðu með Ísrael í atkvæðagreiðslunni 12. desember voru sex ýmist óþekkt smáríki í Kyrrahafi eða ríki sem lítils eða einskis mega sín á alþjóðavettvangi: Gvatemala, Líbería, Míkrónesía, Náúru, Papúa Nýja-Gínea og Paragvæ.

Skyldu þau hafa verið „keypt“?

Í 15 þjóða Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, stærstu og áhrifamestu þjóða heims, kröfðust 13 þeirra tafarlauss vopnahlés á dögunum, ein sat hjá og aðeins ein beitti neitunarvaldi, og svo hélt Ísraelsher því sem ég vil kalla ódæði og þjóðarmorð að fullu áfram eins og ekkert hefði í skorist.

Engin virðing, ekki einu sinni við Sameinuðu þjóðirnar, þing allra þjóða heims, sem er eina samkundan sem er að reyna að halda þessari veröld saman í mennsku formi.

Fyrir mér hafa Ísraelsmenn líka farið langt yfir rauða línu, eins og Rússar, þó að með nokkuð öðrum hætti sé. Þeir eru heldur ekki Evrópubúar. Hver og einn sem getur ekki sætt sig við eða unað blóðbaðinu og þeirri illvígu aðför að almenningi sem Ísraelsher stendur að á Gasa verður að senda þeim sín skilaboð þar um með þeim hætti sem hann getur eða kann.

Ég tek undir kröfu þeirra sem fara fram á að fulltrúa Ísraels verði meinað að taka þátt í Eurovision, sem á að fara fram í Malmö í maí 2024, eða að Ísland dragi ella sína þátttöku til baka.

Hér væri um skýr skilaboð til Ísraelsmanna að ræða um það að við Íslendingar sættum okkur ekki þegjandi og hljóðalaust við barnamorð og rústun byggðar og innviða á Gasa.

Kannski myndu aðrar þjóðir, þátttakendur í Eurovision, taka undir, sem gæti magnað áhrif skilaboðanna, og væri það vel. Þessu ferli þyrfti að hraða.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.