Ríkharður Sveinsson, formaður Taflfélags Reykjavíkur, er látinn á 57. aldursári. Hann lést 20. desember síðastliðinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Ríkharður var fæddur í Reykjavík 28. desember 1966, sonur þeirra Sveins Guðmundssonar…

Ríkharður Sveinsson, formaður Taflfélags Reykjavíkur, er látinn á 57. aldursári. Hann lést 20. desember síðastliðinn á gjörgæsludeild Landspítalans.

Ríkharður var fæddur í Reykjavík 28. desember 1966, sonur þeirra Sveins Guðmundssonar rafmagnsverkfræðings, sem er látinn, og Ingrid Guðmundsson verslunarmanns, sem bjuggu í Reykjavík. Ríkharður, sem var fimmti í röðinni meðal sex systkina, stundaði nám við Menntaskólann í Hamrahlíð og las eftir það þýsku við Háskóla Íslands. Taugar hans til Þýskalands voru raunar alltaf sterkar, en þaðan er móðir hans.

Ríkharður starfaði um árabil hjá Sýslumanninum í Reykjavík og hafði þar með höndum ýmiss konar skjalavinnslu. Síðar vann hann í nokkur ár hjá Heklu hf. og sinnti þar margvíslegri skrifstofuvinnu og samningagerð. Frá 2008 starfaði Ríkharður á eigin vegum fyrir ýmsa lögfræðinga og sinnti þá margvíslegri umsýslu fyrir þá við uppgjör, slit á búum og eignasölu. Þetta var aðalstarf hans síðustu árin.

Ferill Ríkharðs innan Taflfélags Reykjavíkur spannar um 40 ár. Hann var formaður TR á árunum 1997-2001 og svo aftur frá 2019. Sem slíkur skipulagði hann fjölda skákmóta og sá þar um dómgæslu, svo sem á Reykjavíkur- og ólympíuskákmótum. Þá var hann sjálfur öflugur skákmaður.

Ríkarður var, að eigin sögn, haldinn söfnunaráráttu. Safnaði munum tengdum skák á Íslandi og sérstaklega frá heimsmeistaraeinvíginu sem haldið var á Íslandi 1972. Átti einmitt fjölda muna sem þeim sögulega atburði tengjast. Þá lagði Ríkharður sig einnig eftir að ná í hús íslenskum myndasögum, ljóðabókum og póstsögutengdu efni eins og póstkortum og bréfum.

Eftirlifandi eiginkona Ríkharðs er Jóna Kristjana Halldórsdóttir, sérfræðingur hjá Hugverkastofu, og þau eiga soninn Halldór sem er 16 ára og nemandi í framhaldsskóla.