Meidd Alexia Putellas verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla.
Meidd Alexia Putellas verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla. — AFP/Pau Barrena
Spænska knattspyrnukonan Alexia Putellas verður frá næstu mánuðina vegna hnémeiðsla. Putellas hefur í tvígang verið valin besta knattspyrnukona heims. Hún hefur ekki leikið með Barcelona síðan hún skoraði tvö mörk í sigri liðsins á Benfica í Meistaradeildinni 14

Spænska knattspyrnukonan Alexia Putellas verður frá næstu mánuðina vegna hnémeiðsla. Putellas hefur í tvígang verið valin besta knattspyrnukona heims. Hún hefur ekki leikið með Barcelona síðan hún skoraði tvö mörk í sigri liðsins á Benfica í Meistaradeildinni 14. nóvember. Nú er komið í ljós að Putellas þarf á aðgerð að halda til að fá bót meina sinna. Hún er markahæsti leikmaðurinn í sögu Barcelona með 182 mörk.