Hljómsveitin Valdimar heldur áramótatónleika í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ á laugardag, 30. desember. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miðasala á Tix.is. „Loksins, loksins, loksins, loksins er komið aftur að hinum margrómuðu Áramótatónleikum hljómsveitarinnar Valdimar

Hljómsveitin Valdimar heldur áramótatónleika í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ á laugardag, 30. desember. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miðasala á Tix.is.

„Loksins, loksins, loksins, loksins er komið aftur að hinum margrómuðu Áramótatónleikum hljómsveitarinnar Valdimar. Þennan árvissa viðburð þekkir Suðurnesjafólk vel og því óþarfi að fara út í smáatriði,“ segir í tilkynningu. „Það eina sem þarf að hafa hugfast er að þetta verður ROSALEGT!“