Sjöfn Þórðardóttir
sjofn@mbl.is
Hann leyfir sér meira í hátíðarmatargerðinni þá og er ekki með neinar hefðir eins og á jólunum.
„Áramótin eru æðislegur tími, það er alltaf einhver von sem kviknar í hjartanu við að taka á móti nýju ári. Áramótin er miklu afslappaðri tími en jólin,“ útskýrir Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmaður og annar stofnenda Omnom.
Partímatur og þægindi
Áramótin hjá Kjartani eru að hans sögn mun meira spennandi matarlega séð. „Ég er mun hefðbundanri á jólunum en í kringum áramótin. Ég hef gaman af því að prófa nýja hluti um áramótin þó svo að ég hafi stundum wellington-steik.“ Hann útskýrir að eini fasti punkturinn um áramót sé kransakakan sem hann býður upp á á miðnætti með freyðivíninu. „Í ár langaði mig að breyta til,“ segir hann. „Mig langaði að hafa partímat, eitthvað sem er þægilegt að elda og fer vel ofan í mannskapinn og krefst þessi ekki að ég sé inni í eldhúsi allt kvöldið.“
Grísasíða með asísku ívafi
Á boðstólum hjá Kjartani og fjölskyldu í ár er hægelduð grísasíða með asísku ívafi ásamt soðbrauði (bao bun), kimchi-salati og hrísgrónum með chili. „Í eftirrétt ætla ég að bjóða upp á lakkríssúkkulaðimús með karamellusósu og hindberjum. Þetta er eftirréttur sem ég leita mikið í, hann er einfaldur og hægt að undirbúa daginn áður. Svo ekki sé minnst á að fólk kolfellur fyrir honum í hvert einasta skipti.“ Auðvitað er ekki hægt að fagna áramótunum án þess að vera með ljúffengan kokteil við hönd. „Mig langaði í eitthvað ferskt og öðruvísi en fannst nauðsynlegt að hafa smá súkkukaði í drykknum; „whiskey sour“ með kumquat, dvergappelsínu og kakóbitter.“
Kveiki á nokkrum stjörnuljósum
Hvað aðrar hefðir varðar segist Kjartan vera lítill flugeldamaður. „Ég kveiki á nokkrum stjörnuljósum, en við eigum tvo hunda og það þarf að huga vel að þeim á þessum degi. Stundum kíki ég á brennu ef ég er í stuði en það sem einkennir þetta kvöld á mínu heimili er afslöppun og ró. Það er gott að kveðja árið svoleiðis,“ segir hann brosandi. „Ég hlakka til næsta árs, það er mikið að gerast hjá Omnom sem ég hlakka til að deila með fólki.“
Kjartan deilir hér með lesendum Morgunblaðsins helstu uppskriftunum að áramótakræsingum sínum í ár. „Þessi uppskrift að kranskakökunni er fengin að láni hjá honum Örvari bakarameistara hjá Nýja kökuhúsinu sem er alveg skotheld og ég hef notað mörgum sinnum.“
Kransakaka að hætti Örvars
Fyrir 10-15
1 kg kransakökumassi (Odense)
500 g sykur
1 stk. eggjahvíta
Glassúr
1 stk. eggjahvíta
flórsykur eftir þörfum.
Hrærið saman kransakökumassa og sykur í hrærivél eða blandara, bætið hvítunum út í í restina. Rúllið í um það bil 1,5 cm þykka lengju og klappið niður með hendinni. Skerið svo fyrsta bitann 10 cm langan og mótið í hring, svo næstu alltaf 3 cm lengri (13, 16, 19 o.s.frv.) þar til þið eruð komin með 12 hringi. Bakið svo í um það bil 10-12 mínútur við 180°C hita í bakarofni.
Omnom-lakkríssúkkulaðimús með karamellusósu
Fyrir 6
250 g rjómi
30 g hrásykur
190 g Omnom-lakkríssúkkulaði, saxað
500 g rjómi, kaldur
hindber til skrauts
Sjóðið 250 g af rjómanum með sykri og hellið yfir súkkulaðið, blandið vel með töfrasprota, þar til falleg heild myndast. Blandið með afganginum af rjómanum (500 g) út í. Kælið vel í 3-4 klukkutíma, helst sólarhring. Þeytið líkt og þið væruð að þeyta rjóma í hrærivél, passið að ofþeyta ekki, og sprautið í skálar, hellið ögn af karamellusósunni yfir og skreytið með hindberjum.
Karamellusósa
190 g sykur
190 g hunang
190 g mjólk
10 g salt
150 g smjör
250 ml rjómi
Setjið allt saman í stóran pott nema rjóma. Hitið upp í 124°C og hrærið stöðugt á meðan. Bætið rjómanum út í og hitið aftur í 124°C hita.
Dvergappelsínu-„whiskey sour“
Fyrir 1
60 ml Bourbon-viskí
15 ml límónusafi
15 ml sítrónusafi
15 ml dvergappelsínusíróp (uppskrift fyrir neðan)
1 eggjahvíta
nokkrir dropar af kakóbitter eða Angostura
ísmolar
Blandið saman viskíi, límónu- og sítrónusafa ásamt sykursírópi og eggjahvítu í kokteilhristara og hristið vel í 10-20 sekúndur til að búa til góða froðu. Bætið tveimur stórum ísmolum við og hristið í aðrar 20 sekúndur. Hellið og sigtið í kælt glas og bætið við nokkrum dropum af bitter ofan á.
Dvergappelsínusíróp
100 g sykur
100 g vatn
50 g dvergappelsínur, skornar í sneiðar
Setjið sykur og vatn í pott og sjóðið saman. Bætið við appelsínum og sjóðið rólega í fimm mínútur. Látið kólna.