Batavegur Elvar Örn Jónsson ætlar sér að ná fyrsta leik Íslands.
Batavegur Elvar Örn Jónsson ætlar sér að ná fyrsta leik Íslands. — Morgunblaðið/Eyþór
Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, ætlar sér að ná fyrsta leik á EM í Þýskalandi sem hefst 10. janúar. Ísland leikur sinn fyrsta leik tveimur dögum síðar gegn Serbíu. Elvar hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðustu vikur

Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, ætlar sér að ná fyrsta leik á EM í Þýskalandi sem hefst 10. janúar. Ísland leikur sinn fyrsta leik tveimur dögum síðar gegn Serbíu. Elvar hefur verið frá keppni vegna meiðsla síðustu vikur. „Stefnan er á fyrsta leik. Við verðum þó að sjá hvernig ég verð næstu eina og hálfa viku en erum bjartsýnir eins og staðan er í dag,“ sagði Elvar m.a. við Morgunblaðið. Lengra viðtal við Elvar má nálgast á mbl.is/sport.