— Kristinn Magnússon
Gosið í Sundhnúkagígum í desember var margfalt öflugra en fyrri gosin á Reykjanesinu. Hraunið vall upp með ógnvekjandi krafti og spýttust sletturnar hátt til himins. Krafturinn dvínaði þó hratt og innan nokkurra daga var gosinu lokið þótt óróinn héldi áfram og landris hæfist brátt á ný.