Ítalskur Carlo Ancelotti stýrir stórliðinu Real Madrid næstu árin.
Ítalskur Carlo Ancelotti stýrir stórliðinu Real Madrid næstu árin. — AFP/Odd Andersen
Ítalinn Carlo Ancelotti hefur skrifað undir nýjan samning sem knattspyrnustjóri spænska stórveldisins Real Madrid. Nýi samningurinn gildir til sumarsins 2026. Ancelotti hafði verið sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastöðuna hjá Brasilíu en nú er …

Ítalinn Carlo Ancelotti hefur skrifað undir nýjan samning sem knattspyrnustjóri spænska stórveldisins Real Madrid. Nýi samningurinn gildir til sumarsins 2026. Ancelotti hafði verið sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastöðuna hjá Brasilíu en nú er ljóst að hann verður um kyrrt í spænsku höfuðborginni. Ancelotti kom til Real Madrid frá Everton á Englandi sumarið 2021 en hann hafði áður stýrt spænska liðinu á árunum 2013 til 2015.