Norður
♠ K10854
♥ G42
♦ 8
♣ ÁKDG
Vestur
♠ 96
♥ 1063
♦ D9742
♣ 1083
Austur
♠ ÁD72
♥ K
♦ 1065
♣ 97542
Suður
♠ G3
♥ ÁD9873
♦ ÁKG3
♣ 6
Suður spilar 6♥.
„Ef Ítalir notuðu einhvers konar svindlkerfi til að benda á útspil, hefði þá ekki verið rökrétt að beita því í þessu spili?“
Charles Goren tók upp hanskann fyrir Ítali í heitri umræðu eftir HM 1958 og benti meðal annars á slemmuna að ofan. Aðeins spaðaútspil hnekkir 6♥ en Forquet spilaði út tígli eftir þessar sagnir: 1♠-2♥-3♥-4G-5♦-6♥.
Avon Wilsmore, höfundur Under the Table, hefur aðra sýn en Goren: „Ítalir voru undir ströngu eftirliti þegar spilið kom upp og það hefði verið allt of grunsamlegt að spila út spaða án útspilsdobls. Raunar er illskiljanlegt af hverju Siniscalco í austur doblaði ekki – en kannski taldi hann sig þegar hafa sýnt spaðastyrk á sinn persónulega hátt!“