Það veit hver grilleigandi að málmar ryðga fljótt hér á landi séu þeir hafðir úti, enda eru öll landnámsgrill að moldu orðin. Þetta stafar af veðrinu, segja má að málmarnir ryðgi af veðurfarsástæðum en þótt veður sé ekki einfalt er kannski fullmikið sagt að forn skeifa finnist hálfétin „vegna veðurfarslegra atriða“.