Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Vals í úrvalsdeildinni, útilokar ekki að bjóða sig fram til embættis forseta. Frá þessu greindi hann í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Facebook en Björgvin Páll, sem er …
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Vals í úrvalsdeildinni, útilokar ekki að bjóða sig fram til embættis forseta. Frá þessu greindi hann í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Facebook en Björgvin Páll, sem er 38 ára gamall, á að baki 258 A-landsleiki fyrir Ísland.
Guðni Th. Jóhannesson greindi frá því í nýársávarpi sínu að hann myndi ekki bjóða sig fram á ný til embættisins.