Akranes Oliver Stefánsson er genginn til liðs við ÍA á nýjan leik.
Akranes Oliver Stefánsson er genginn til liðs við ÍA á nýjan leik. — Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnumaðurinn Oliver Stefánsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik. Oliver, sem er 21 árs gamall, kemur til félagsins frá Breiðabliki þar sem …

Knattspyrnumaðurinn Oliver Stefánsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik. Oliver, sem er 21 árs gamall, kemur til félagsins frá Breiðabliki þar sem hann lék á síðustu leiktíð en hann gekk til liðs við Blika frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Norrköping í ársbyrjun 2023. Hann gekk til liðs við Norrköping árið 2018, þá 16 ára gamall, en alls á hann að baki 29 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað eitt mark.