40 ára Susanne er frá Frankfurt í Þýskalandi. Hún kom fyrst til Íslands 2003 en flutti hingað 2009 og býr á Akureyri. Susanne er líffræðingur að mennt og vinnur í gæðaeftirliti hjá Mjólkursamsölunni

40 ára Susanne er frá Frankfurt í Þýskalandi. Hún kom fyrst til Íslands 2003 en flutti hingað 2009 og býr á Akureyri. Susanne er líffræðingur að mennt og vinnur í gæðaeftirliti hjá Mjólkursamsölunni. Aðaláhugamál hennar eru hestar og fyrsta heimsóknin til Íslands var út af íslenska hestinum.


Fjölskylda Maki Susanne er Jón Dan Jóhannsson, f. 1991, stálsmiður hjá ÁK smíði. Dóttir Susanne er Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske, f. 2013, og stjúpsonur Susanne og sonur Jóns Dans er Ýmir Andri Jónsson, f. 2017.