Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa. Það er ítalski miðillinn Tuttosport sem greinir frá þessu en Albert, sem er 26…
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa. Það er ítalski miðillinn Tuttosport sem greinir frá þessu en Albert, sem er 26 ára gamall, hefur leikið frábærlega fyrir Genoa í ítölsku A-deildinni á tímabilinu. Hann hefur skorað sjö mörk í 16 leikjum í deildinni en Genoa vill fá í kringum 30 milljónir evra fyrir Albert en það samsvarar rúmlega 4,5 milljörðum íslenskra króna.