Norður
♠ 2
♥ DG8652
♦ G9753
♣ 2
Vestur
♠ 10943
♥ 42
♦ D64
♣ DG97
Austur
♠ ÁK85
♥ Á9
♦ K102
♣ 10653
Suður
♠ DG76
♥ K107
♦ Á8
♣ ÁK84
Suður spilar 4♥.
Aldrei var ótvírætt sannað að liðsmenn Bláu sveitarinnar hefðu notað leynileg skilaboð til að „hjálpa makker“ í erfiðum stöðum. Talað var um „reykmerki“ og höfuðhreyfingar, hvernig spilum var haldið hátt eða lágt á lofti og svo framvegis, en svindl var aldrei sannað. Ekki fyrr en „fótgönguliðarnir“ komu til sögunnar á HM 1975 – Gianfranco Facchini og Sergio Zucchelli.
Skermar voru notaðir í fyrsta sinn á þessu móti, en náðu aðeins niður á borðplötuna, ekki niður á gólf. Fætur spilara léku því lausum hala undir borðinu og þeir félagar voru gripnir góðvolgir við að troða hvor öðrum um tær.
Spilið að ofan vakti grunsemdir. Suður varð sagnhafi í 4♥ eftir grandopnun og yfirfærslu og Zucchelli kom út með ♠10 frekar en ♣D eins og flestir hefðu gert. Lítið við því að segja, kannski, en fótaleikfimin fór ekki á milli mála.