- Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er í viðbragðsstöðu vegna ofanflóðahættu á Seyðisfirði. Veðurstofa lýsti yfir óvissustigi í gær undir Strandartindi og hafa nokkur hús verið rýmd.
- Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er í viðbragðsstöðu vegna ofanflóðahættu á Seyðisfirði. Veðurstofa lýsti yfir óvissustigi í gær undir Strandartindi og hafa nokkur hús verið rýmd.
„Um er að ræða viðbúnað gagnvart veðurspá. Það hefur snjóað á svæðinu og rignt. Rigning mun halda áfram út daginn og þegar rignir ofan í snjóinn geta vot flóð fallið eða jafnvel krapaflóð,“ sagði Erla Guðný Helgadóttir snjóflóðasérfræðingur í samtali við mbl.is í gær. Um er að ræða lítið og afmarkað svæði þar sem helsta hættan er á afmörkuðu svæði undir Strandartindi, að sögn snjóflóðasérfræðings á náttúruvárvakt Veðurstofu. Almannavarnir hafa ekki lýst yfir óvissustigi en eru í viðbragðsstöðu og það eru einnig björgunarsveitir.