Gæsluvarðhald yfir karlmanni vegna skotárásarinnar í Úlfarsárdal í byrjun janúar rennur út í dag og að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, er gert ráð fyrir því að gerð verði krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi gæsluvarðhald yfir manninum í byrjun desember en öðrum manni sem var í gæsluvarðhaldi var sleppt.
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum í tengslum við skotrárásina í Álfholti í Hafnarfirði á aðfangadagkvöld rennur út á föstudaginn. Mennirnir tveir voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald vegna málsins en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort óskað verði eftir framlengingu á gæsluvarðhaldinu. Að sögn Gríms er málið enn í rannsókn og miðar henni eðlilega. Hann segir að eitt af því sem verið sé að skoða sé hvort skotárásin tengist öðrum skotárásum sem áttu sér stað undir lok síðasta árs. Grímur sagði í samtali við mbl.is rétt fyrir áramótin að hann útilokaði ekki að fleiri yrðu handteknir vegna málsins. Ekki hefur enn komið til þess. gummih@mbl.is