Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fv. sambýliskonu sinni og barnsmóður. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað nauðgað henni auk stafræns og andlegs ofbeldis
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fv. sambýliskonu sinni og barnsmóður. Er honum gefið að sök að hafa ítrekað nauðgað henni auk stafræns og andlegs ofbeldis. Alls eru tilgreind tíu tilvik í ákæru, sem er í tólf liðum í heild, þar sem honum er gefið að sök að hafa nauðgað konunni.
Í mörgum tilfellum er hann sagður hafa beitt valdi og haft endaþarmsmök gegn vilja hennar. Einnig birti hann nektarmyndir af henni án samþykkis.