Grindavík Sarah Mortensen leikur með Grindavík út leiktíðina.
Grindavík Sarah Mortensen leikur með Grindavík út leiktíðina. — Ljósmynd/FIBA
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gengið frá samningi við Söruh Mortensen og mun hún leika með liðinu seinni hluta tímabils. Kemur sú danska inn fyrir bandaríska framherjann Charisse Fairley sem Grindavík lét fara um áramótin

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gengið frá samningi við Söruh Mortensen og mun hún leika með liðinu seinni hluta tímabils. Kemur sú danska inn fyrir bandaríska framherjann Charisse Fairley sem Grindavík lét fara um áramótin. Mortensen er 185 sentímetrar á hæð, fædd árið 1997 og er framherji eins og sú bandaríska. Með félagaskiptunum fetar hún í fótspor bróður síns Daniels Mortensens sem leikur með karlaliði Grindavíkur.