Leikarinn Jeremy Renner lenti í alvarlegu slysi á nýársdag 2023.
Leikarinn Jeremy Renner lenti í alvarlegu slysi á nýársdag 2023. — Ljósmynd/Gage Skidmore
Bandaríski leikarinn Jeremy Renner ætlar að taka þátt í þriðju þáttaröðinni af Mayor of Kingstown en hann lenti í alvarlegu slysi fyrir ári, á nýársdag 2023. Renner varð fyrir snjóblásara þegar hann bjargaði frænda sínum, fékk mikið högg á…

Bandaríski leikarinn Jeremy Renner ætlar að taka þátt í þriðju þáttaröðinni af Mayor of Kingstown en hann lenti í alvarlegu slysi fyrir ári, á nýársdag 2023. Renner varð fyrir snjóblásara þegar hann bjargaði frænda sínum, fékk mikið högg á brjóstkassann og lá lengi á spítala. Variety greindi frá þessum nýju fréttum af ferli leikarans.

Í viðtali á CNN um áramótin ræddi Renner meðal annars um endurhæfingu sína og væntanlega plötu. „Við höfum mörgu að fagna í ár,“ er haft eftir leikaranum. „Ég er svo lánsamur að hafa haft svo margt að lifa fyrir. Ég á risastóra fjölskyldu, tíu ára dóttur. Ég hefði valdið vonbrigðum og eyðilagt líf margra ef ég hefði látið lífið. Ég hef margt að berjast fyrir. Bati er einstefna fyrir mér. Ég legg enn hart að mér á hverjum degi.“

Renner er einna helst þekktur fyrir að leika Marvel-hetjuna Hawkeye en hann fer einnig með aðalhlutverkið í áðurnefndum þáttum Mayor of Kingstown.