Knattspyrnukonan Helena Ósk Hálfdánardóttir er komin til liðs við Íslandsmeistara Vals og hefur samið við félagið til tveggja ára en hún hefur verið í röðum Breiðabliks undanfarin tvö ár. Helena, sem er 22 ára kantmaður, missti af öllu síðasta tímabili þar sem hún sleit krossband í hné
Knattspyrnukonan Helena Ósk Hálfdánardóttir er komin til liðs við Íslandsmeistara Vals og hefur samið við félagið til tveggja ára en hún hefur verið í röðum Breiðabliks undanfarin tvö ár.
Helena, sem er 22 ára kantmaður, missti af öllu síðasta tímabili þar sem hún sleit krossband í hné. Hún hefur leikið 82 leiki í efstu deild og skorað 9 mörk fyrir Breiðablik, Fylki og FH en þar af eru 54 leikir og 7 mörk með uppeldisfélaginu FH.