Knattspyrnumaðurinn Anton Logi Lúðvíksson úr Breiðabliki er kominn til Noregs þar sem hann mun að óbreyttu ganga frá samningi við úrvalsdeildarfélagið Haugesund. Fer hann í læknisskoðun hjá félaginu, sem hefur þegar náð samkomulagi við Breiðablik um kaupverð
Knattspyrnumaðurinn Anton Logi Lúðvíksson úr Breiðabliki er kominn til Noregs þar sem hann mun að óbreyttu ganga frá samningi við úrvalsdeildarfélagið Haugesund. Fer hann í læknisskoðun hjá félaginu, sem hefur þegar náð samkomulagi við Breiðablik um kaupverð. Óskar Hrafn Þorvaldsson var ráðinn þjálfari Haugesund fyrir skömmu en Anton hefur leikið undir hans stjórn hjá Kópavogsfélaginu frá árinu 2020.