Norður
♠ KD72
♥ KG85432
♦ 7
♣ 2
Vestur
♠ 8643
♥ 10
♦ ÁK63
♣ ÁD98
Austur
♠ –
♥ D6
♦ G109542
♣ K10765
Suður
♠ ÁG1095
♥ Á97
♦ D8
♣ G43
Suður spilar 6♠ doblaða.
Opnunardobl Ítala voru víðfræg – 12 plús punktar og allar skiptingar. En spilamatið var svo gott, sögðu aðdáendur, að þeir lentu alltaf löppunum. Spilið að ofan er frá úrslitaleik Ólympíumótsins 1968. Walter Avarelli var í vestur og doblaði opnun suðurs á 1♠. „Var maðurinn ekkert hræddur um að makker tæki upp á því að melda hjarta af miklum móð?“ spyr Avon Wilsmore, höfundur Under the Table.
Greinilega ekki. Í þessu tilfelli fór af stað löng sagnbarátta sem endaði í 6♠ dobluðum yfir 6♣ Belladonna. Vel af sér vikið hjá báðum pörum, því það standa 6♣ í A-V og 6♠ fara bara einn niður. Norman Kay var með spil vesturs á hinu borðinu og hann var hræddur við hjartameldingar makkers og passaði því spaðaopnun suðurs. Edgar Kaplan í austur hélt sér líka til hlés og sagnir enduðu í 5♠, slétt unnum.