Garðabær Ólafur Karl Finsen lék alls níu tímabil með Stjörnunni.
Garðabær Ólafur Karl Finsen lék alls níu tímabil með Stjörnunni. — Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann lék með Fylki á síðasta tímabili. Ólafur er 31 árs sóknarmaður og lék stærstan hluta ferilsins með Stjörnunni þar sem hann var í stóru…

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann lék með Fylki á síðasta tímabili. Ólafur er 31 árs sóknarmaður og lék stærstan hluta ferilsins með Stjörnunni þar sem hann var í stóru hlutverki þegar félagið varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið árið 2014. Hann lék einnig með Selfossi, Val og FH, ávallt í efstu deild, og skoraði alls 39 mörk í 182 leikjum í deildinni.