Svartur á leik.
Svartur á leik.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c3 d6 4. Bd3 Rf6 5. Re2 e5 6. 0-0 0-0 7. h3 Rbd7 8. Be3 d5 9. Rd2 He8 10. Bg5 exd4 11. Rxd4 h6 12. Bxf6 Rxf6 13. Df3 dxe4 14. Rxe4 Rd7 15. Dg3 Be5 16. De3 Rc5 17. Kh1 Staðan kom upp á Íslandsmótinu í atskák sem fram fór í…

1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. c3 d6 4. Bd3 Rf6 5. Re2 e5 6. 0-0 0-0 7. h3 Rbd7 8. Be3 d5 9. Rd2 He8 10. Bg5 exd4 11. Rxd4 h6 12. Bxf6 Rxf6 13. Df3 dxe4 14. Rxe4 Rd7 15. Dg3 Be5 16. De3 Rc5 17. Kh1

Staðan kom upp á Íslandsmótinu í atskák sem fram fór í árslok 2023 í Bankanum vinnustofu á Selfossi en CAD-bræður sáu um mótið með styrk frá Kaffi Krús og Tómasi Þóroddssyni. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2.377) hafði svart gegn Davíð Kolka (1.850). 17. … Rxd3! 18. Dxd3 Bf5! staða hvíts er núna töpuð þar eð riddarar hans er krossleppaður. 19. f3? skárra var að leika 19. g4. 19. … c5! hvítur tapar núna manni. 20. Dd2 cxd4 21. Dxh6 Bg7 22. Df4 Bxe4 23. fxe4 De7 24. cxd4 Bxd4 25. Hae1 Be5 26. Dg4 Had8 27. Hf5 De6 28. Hef1 He7 29. Dg5 Hde8 30. h4 Bg7 31. H5f4 De5 32. Dg4 Dh5 33. Dh3 Hxe4 34. Hxe4 Hxe4 og hvítur gafst upp.