Tottenham Radu Dragusin hefur samþykkt tilboð frá Tottenham.
Tottenham Radu Dragusin hefur samþykkt tilboð frá Tottenham. — AFP/Giuseppe Bellini
Rúmenski varnarmaðurinn Radu Dragusin hefur samþykkt að ganga í raðir Tottenham frá Genoa á Ítalíu. Hann hafnaði þýska stórveldinu Bayern München til að semja við Lundúnafélagið. Dragusin er aðeins 21 árs en hefur leikið 57 leiki með Genoa í…

Rúmenski varnarmaðurinn Radu Dragusin hefur samþykkt að ganga í raðir Tottenham frá Genoa á Ítalíu. Hann hafnaði þýska stórveldinu Bayern München til að semja við Lundúnafélagið. Dragusin er aðeins 21 árs en hefur leikið 57 leiki með Genoa í A-deildinni undanfarin tvö tímabil, eftir að hafa verið í röðum Juventus frá 16 ára aldri. Þýski framherjinn Timo Werner kom til Tottenham á lánssamningi frá Leipzig á þriðjudag.