Leikkonurnar Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir frumsýndu sjöttu seríuna af Venjulegu fólki í lok síðasta árs. Þættirnir hafa slegið í gegn. „Þetta er sjötta og síðasta. En við kannski viljum aldrei segja aldrei, þetta er búið í bili,“ segir Júlíana

Leikkonurnar Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir frumsýndu sjöttu seríuna af Venjulegu fólki í lok síðasta árs. Þættirnir hafa slegið í gegn. „Þetta er sjötta og síðasta. En við kannski viljum aldrei segja aldrei, þetta er búið í bili,“ segir Júlíana. Tökum á seríunni lauk í ágúst síðastliðnum og voru þær á mikilli ferð og flugi. „Við fórum til Köben, það var mjög stutt og mikið að gera,“ segir Vala. „Hún Júlíana sofnar fyrir flugtak og vaknar við lendingu. Ég er allt flugið að fara yfir ævi mína.“

Lestu meira á K100.is.