Eftirsóttur Albert Guðmundsson hefur leikið afar vel með Genoa.
Eftirsóttur Albert Guðmundsson hefur leikið afar vel með Genoa. — Ljósmynd/Genoa
Ítalska knattspyrnufélagið Genoa hefur hafnað tilboði frá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham í Albert Guðmundsson. Gianluca Di Marzio segir á samfélagsmiðlinum X að tilboð hafi borist frá West Ham en Genoa vilji ekki selja sinn markahæsta leikmann

Ítalska knattspyrnufélagið Genoa hefur hafnað tilboði frá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham í Albert Guðmundsson. Gianluca Di Marzio segir á samfélagsmiðlinum X að tilboð hafi borist frá West Ham en Genoa vilji ekki selja sinn markahæsta leikmann.

Albert framlengdi í nóvember samning sinn við ítalska félagið til ársins 2027. Albert er fjórði markahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar í vetur með átta mörk.