Fundahöld Fulltrúar verkalýðsfélaganna í húsnæði ríkissáttasemjara. Boðað er til næsta fundar á morgun.
Fundahöld Fulltrúar verkalýðsfélaganna í húsnæði ríkissáttasemjara. Boðað er til næsta fundar á morgun. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjaraviðræður samfylkingar verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins ganga vel að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR. Samningafundur fór fram í gær og næsti fundur verður á morgun. „Það sem skiptir mjög miklu máli í svona vinnu er að…

Kjaraviðræður samfylkingar verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins ganga vel að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR. Samningafundur fór fram í gær og næsti fundur verður á morgun.

„Það sem skiptir mjög miklu máli í svona vinnu er að samningsaðilar séu sammála um forsendur og reiknilíkön og ýmislegt annað sem skiptir máli. Það er bara vinna í fullum gangi og ég myndi segja að fundurinn hefði gengið vel,“ sagði hann að loknum fundinum í gær. Ragnar Þór á ekki von á svörum stjórnvalda fyrr en í næstu viku.

„Grundvallarforsenda þessa verkefnis er að samningsaðilar, og þá er ég ekki bara að tala um Samtök atvinnulífsins og bandalag okkar, heldur að fyrirtækin í landinu og almenningur og hið opinbera hafi trú á þessu verkefni og trú á því að við getum unnið niður verðbólgu og vexti með hröðum og öruggum hætti,“ segir hann. „Ef það er raunveruleg trú á verkefnið, þá munum við sjá fyrirtækin stíga mikilvæg og föst skref áfram í því að draga til baka bæði boðaðar hækkanir og sömuleiðis þær hækkanir sem hafa þegar átt sér stað. Ég sakna þess að sjá ekki meira af yfirlýsingum í þá áttina. Það vita það allir að hátt vaxtastig hefur hrikaleg áhrif á heimilin í landinu en þar sem skuldir fyrirtækjanna eru mun hærri en skuldir heimilanna þá er gríðarlega mikið undir þar líka til kostnaðarlækkunar. Það er til mikils að vinna fyrir alla.“ omfr@mbl.is