Friðlýsing Guðlaugur Þór Þórðarson við Urriðavöll í gær ásamt fulltrúum Oddfellowreglunnar og Garðabæjar.
Friðlýsing Guðlaugur Þór Þórðarson við Urriðavöll í gær ásamt fulltrúum Oddfellowreglunnar og Garðabæjar. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra skrifaði í gær undir tillögu um friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni í Garðabæ. Tillagan að friðlýsingunni kemur frá Garðabæ og landeigandanum, sem er Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar. Þetta er í fyrsta skipti sem fólkvangur er friðlýstur í einkalandi.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra skrifaði í gær undir tillögu um friðlýsingu fólkvangs í Urriðakotshrauni í Garðabæ. Tillagan að friðlýsingunni kemur frá Garðabæ og landeigandanum, sem er Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowreglunnar. Þetta er í fyrsta skipti sem fólkvangur er friðlýstur í einkalandi.

Deiliskipulag svæðisins var samþykkt í júlí 2023 og er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unnið er að deiliskipulagi samhliða friðlýsingu. Deiliskipulagið tryggir sameiginlega sýn Garðabæjar, Umhverfisstofnunar og Styrktar- og líknarsjóðs um farsæla þróun og uppbyggingu á svæðinu.

„Markmið stofnunar fólkvangsins er að festa Urriðakotshraun og nánasta umhverfi þess í Urriðvatnsdölum í sessi sem aðlaðandi útivistarsvæði, með öflugu stígakerfi og aðstöðu til golfiðkunar samhliða vernd einstakrar náttúru, menningarminja og landslags,“ segir í tilkynningu. Friðlýsingin og fyrirhuguð stækkun Urriðavallar úr 18 holum í 27 er í samræmi við náttúruverndarlög, sem heimila friðlýsingu landsvæða til útivistar og almenningsnota sem fólkvangs. Þekktasta dæmi þess er skíðasvæðið í fólkvanginum í Bláfjöllum.

Eitt höfuðmarkmið Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa er að vinna að betri lýðheilsu meðal landsmanna. „Því fellur það vel að markmiðum landeiganda að afhenda endurgjaldslaust hundruð hektara lands í jaðri höfuðborgarsvæðisins til útivistar öllum almenningi,“ segir ennfremur í tilkynningu.

Friðlýsing

  • Urriðakotshraun er á milli Vífilsstaðahlíðar og Urriðavallar
  • Oddfellowreglan hefur áður lagt fram land til friðlýsingar
  • Styrktar- og líknarsjóður á hluta af landi Selgjár sem ásamt Búrfelli og Búrfellsgjá var friðlýst í júní 2020
  • Einnig kom sjóðurinn að friðlýsingu Vífilsstaðahrauns og Maríuhella árið 2014