Laugardalur Gert er ráð fyrir að hin nýja þjóðarhöll rísi við Suðurlandsbraut sunnan við Laugardalshöllina og verði 19.000 fermetrar að stærð.
Laugardalur Gert er ráð fyrir að hin nýja þjóðarhöll rísi við Suðurlandsbraut sunnan við Laugardalshöllina og verði 19.000 fermetrar að stærð. — Morgunblaðið/sisi
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í gær samning milli ríkis og Reykjavíkurborgar…

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í gær samning milli ríkis og Reykjavíkurborgar um stofnun félags sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Félagið heitir Þjóðarhöll ehf.

Nýja þjóðarhöll hefur ítrekað borið á góma síðustu ár. Viljayfirlýsing um þjóðarhöll í innanhússíþróttum var undirrituð í maí 2022. Átti hún að vera tilbúin árið 2025. Síðar var þeim áformum frestað til 2026.

Fyrsta verk Þjóðarhallar ehf. er að efna til forvals og samkeppni um hönnun og byggingu þjóðarhallarinnar. Auk þess tekur félagið við verkefnum framkvæmdanefndar um þjóðarhöll í Laugardal sem lætur af störfum að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Segir þar enn fremur að í samningnum sé byggt á tillögum starfshóps um undirbúning uppbyggingar þjóðarleikvanga í íþróttum.

Höllin mun rísa sunnan við Laugardalshöll upp að Suðurlandsbraut og verður 19.000 fermetrar að stærð. Samkvæmt frumathugun framkvæmdanefndar er miðað við að byggingin muni taka 8.600 manns í sæti og allt að 12.000 á tónleika. Til samanburðar rúmar Laugardalshöll 5.500 gesti hið mesta.

Ríkið á 55% og borgin 45%

Í tilkynningunni segir að einhugur ríki um að mannvirkið muni nýtast vel sem þjóðarhöll í íþróttum og uppfylli allar kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra keppnisviðburða. Þjóðarhöllin muni stórbæta aðstöðu fyrir íþróttafélög og skóla í nágrenni Laugardals fyrir kennslu, skólaíþróttir, æfingar og keppni. Þá verði þjóðarhöllin mikilvæg miðstöð fyrir afreks- og almenningsíþróttir og muni nýtast fyrir viðburði tengda menningu og atvinnulífi.

Eignarhlutur ríkisins við stofnun félagsins er 55% og eignarhlutur Reykjavíkurborgar er 45%. Segir í tilkynningunni að kostnaðarskiptingin byggist á úttekt á þörfum hvors aðila fyrir sig á notkun þjóðarhallarinnar. Heimild er í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár um stofnun félags um þjóðarhöll.