Sinéad O'Connor
Sinéad O'Connor
Írska tónlistarkonan Sinéad O'Connor lést af náttúrulegum orsökum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dánardómstjóra sem BBC greinir frá. O'Connor fannst látin á heimili sínu í London í júli aðeins 56 ára að aldri

Írska tónlistarkonan Sinéad O'Connor lést af náttúrulegum orsökum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dánardómstjóra sem BBC greinir frá. O'Connor fannst látin á heimili sínu í London í júli aðeins 56 ára að aldri. Daginn eftir að hún fannst sendi lögreglan frá sér tilkynningu um að hún teldi ekki að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti. Fyrr í vikunni var tilkynnt að haldnir yrðu minningartónleikar í Carnegie Hall í New York 20. mars til heiðurs O'Connor og samlanda hennar, Shane McGowan söngvara The Pogues, sem einnig lést á síðasta ári.