Bóluefni gegn covid-19.
Bóluefni gegn covid-19.
Stjórnvöld í Úganda ætla að eyða útrunnum bóluefnum gegn covid-19 en landið fékk á sínum tíma lán hjá Alþjóðabankanum til að kaupa efnin. Verðmiðinn á bóluefnunum sem þarf að eyða jafngildir um milljarði króna

Stjórnvöld í Úganda ætla að eyða útrunnum bóluefnum gegn covid-19 en landið fékk á sínum tíma lán hjá Alþjóðabankanum til að kaupa efnin.

Verðmiðinn á bóluefnunum sem þarf að eyða jafngildir um milljarði króna. Landið keypti um 12,6 milljónir skammta en helmingur þeirra er nú útrunninn. Lítil eftirspurn hefur verið eftir bólusetningu.