Norður
♠ K63
♥ 10542
♦ KG
♣ KD107
Vestur
♠ DG98
♥ 7
♦ ÁD10976
♣ 64
Austur
♠ Á52
♥ G96
♦ 842
♣ G852
Suður
♠ 1074
♥ ÁKD83
♦ 53
♣ Á93
Suður spilar 4♥.
Spaðadrottning kemur askvaðandi út gegn 4♥. Hvað á sagnhafi að gera – á hann að dúkka eða setja kónginn?
Dúkka auðvitað, því tían heima er máttug og heldur árásinni í skefjum ef útspilið er frá ♠DGx(x). Þetta gerðu menn svikalaust þegar spilið kom upp í jólamóti Hafnfirðinga. Eigi að síður spilaði vestur víða spaða áfram í öðrum slag og gaf þannig samninginn. Af hverju?
Af því að austur KALLAÐI í spaða með tvistinum. Sem eru mistök, því það getur varla verið neitt leyndarmál hvar ásinn er þegar drottningin heldur slag. Austur ætti aðeins að kalla ef hann á tíuna með ásnum. Spaðafimman er raunar loðið spil sem frávísun (gæti verið frá ♠Á105) en betur er ekki hægt að gera. Ef vestur skiptir næst yfir í tígulás og meiri tígul þarf sagnhafi að giska vel til að fá tíu slagi.