Steinþór Einarsson
Steinþór Einarsson
Snorri Sturluson, verjandi Steinþórs Einarssonar sem var dæmdur í átta ára fangelsi í gær fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana, segist ætla að áfrýja dómnum. „Þessi dómur er vonbrigði og ekki í samræmi við væntingar

Snorri Sturluson, verjandi Steinþórs Einarssonar sem var dæmdur í átta ára fangelsi í gær fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana, segist ætla að áfrýja dómnum.

„Þessi dómur er vonbrigði og ekki í samræmi við væntingar. Þessu máli verður áfrýjað,“ sagði Snorri í samtali við mbl.is í gær. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra á þriðjudag. Steinþóri er einnig gert að greiða tveimur ólögráða börnum Tómasar sex milljónir króna í miskabætur hvoru um sig og skaðabætur upp á 6,6 milljónir annars vegar og 4,4 hins vegar. Steinþór bar fyrir sig neyðarvörn.