Glamúr hefur einkennt fyrstu daga ársins í myndabanka fréttaveitunnar AFP enda hefst árið á ýmsum frumsýningum og verðlaunahátíðum. Glæsilegur klæðnaður frá Golden Globe-verðlaunahátíðinni, frumsýning endurgerðar á kvikmyndinni Mean Girls, gata í París kennd við David Bowie og ný stjarna á frægðarstéttinni The Hollywood Walk of Fame var meðal þess sem vakti athygli ljósmyndara.