Börn Hægt er að sækja um niðurgreiðslur hjá Reykjavíkurborg.
Börn Hægt er að sækja um niðurgreiðslur hjá Reykjavíkurborg. — Morgunblaðið/Eggert
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um niðurgreiðslur til foreldra barna sem eru 18 mánaða og eldri og eru hjá dagforeldrum. Breytingin var samþykkt í borgarráði í desember. Samkvæmt nýrri gjaldskrá er miðað við að foreldrar greiði sama gjald og í leikskóla fyrir 18 mánaða og eldri

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um niðurgreiðslur til foreldra barna sem eru 18 mánaða og eldri og eru hjá dagforeldrum. Breytingin var samþykkt í borgarráði í desember.

Samkvæmt nýrri gjaldskrá er miðað við að foreldrar greiði sama gjald og í leikskóla fyrir 18 mánaða og eldri. Á móti hækkar niðurgreiðsla Reykjavíkurborgar til dagforeldra vegna þeirra barna en þó upp að ákveðnu hámarki, sem er breytilegt eftir dvalarstundum viðkomandi barns.

Sem dæmi má nefna að sambúðarfólk og hjón greiða sama gjald fyrir barn sem dvelur í átta stundir á dag hjá dagforeldri og fyrir leikskólabarn sem er með sama dvalartíma, eða 34.053 krónur á mánuði, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.