Þýskaland Jadon Sancho er á leiðinni til Dortmund frá United.
Þýskaland Jadon Sancho er á leiðinni til Dortmund frá United. — AFP/Paul Ellis
Þýska knattspyrnufélagið Dortmund og Manchester United á Englandi hafa komist að samkomulagi um að sóknarmaðurinn Jadon Sancho fari að láni til Dortmund út leiktíðina. Sancho hefur verið úti í kuldanum hjá United síðustu mánuði vegna rifrildis við knattspyrnustjórann Erik ten Hag

Þýska knattspyrnufélagið Dortmund og Manchester United á Englandi hafa komist að samkomulagi um að sóknarmaðurinn Jadon Sancho fari að láni til Dortmund út leiktíðina. Sancho hefur verið úti í kuldanum hjá United síðustu mánuði vegna rifrildis við knattspyrnustjórann Erik ten Hag. Dortmund greiðir 3,4 milljónir punda fyrir lánið og með því eru launagreiðslur. Sancho sló í gegn hjá Dortmund áður en United keypti hann á 73 milljónir punda.