[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Björgvin Páll Gústavsson – 1 Björgvin Páll, sem er 38 ára, er samningsbundinn Val í úrvalsdeildinni hér heima en hann er uppalinn hjá HK í Kópavogi. Hann hóf meistaraflokksferilinn með HK áður en hann gekk til liðs vð ÍBV í Vestmannaeyjum árið …

Björgvin Páll Gústavsson – 1

Björgvin Páll, sem er 38 ára, er samningsbundinn Val í úrvalsdeildinni hér heima en hann er uppalinn hjá HK í Kópavogi.

Hann hóf meistaraflokksferilinn með HK áður en hann gekk til liðs vð ÍBV í Vestmannaeyjum árið 2005 þar sem hann lék í eitt tímabil áður en hann gekk til liðs við Fram sumarið 2006. Eftir tvö tímabil með Fram hélt hann út í atvinnumennsku til Þýskalands og samdi við Bittenfeld í þýsku B-deildinni en liðið heitir Stuttgart í dag.

Hann lék með Bittenfeld í tvö tímabil áður en hann söðlaði um og samdi við Kadetten í Sviss árið 2009. Hann varð tvívegis svissneskur meistari með Kadetten og árið 2011 gekk hann til liðs við þýska stórliðið Magdeburg þar sem hann lék í tvö tímabil. Þaðan lá leiðin til Bergischer þar sem hann lék frá 2013 til 2017 en eftir fall liðsins úr efstu deild ákvað hann að snúa heim til Íslands og semja við Hauka.

Hann stoppaði stutt við á Íslandi og lék með Haukum í eitt tímabil áður en hann samdi við Skjern í Danmörku þar sem hann lék frá 2018 til 2020. Hann gekk til liðs við Hauka á nýjan leik árið 2020 áður en hann samdi við Val árið 2021 en hann varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari með Valsmönnum árið 2022.

Björgvin á að baki 260 landsleiki og er reyndasti leikmaðurinn í íslenska hópnum en í þessum leikjum hefur hann skorað 21 mark. Hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Póllandi í Ólafsvík árið 2003. Evrópumótið í Þýskalandi verður sextánda stórmót markvarðarins en hann var í silfurliði Íslands á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 og í bronsliði Íslands á Evrópumótinu í Austurríki árið 2010.

Viktor Gísli Hallgrímsson – 16

Viktor Gísli, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Nantes í frönsku 1. deildinni en hann gekk til liðs við félagið frá GOG í Danmörku sumarið 2022. Markvörðurinn skrifaði undir þriggja ára samning í Frakklandi.

Viktor Gísli er uppalinn hjá Fram þar sem hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik tímabilið 2016-17 en sama tímabil var hann valinn efnilegasti markvörður úrvalsdeildarinnar.

Hann gekk til liðs við GOG í Danmörku sumarið 2019 og lék með liðinu í þrjú tímabil. Hann varð Danmerkurmeistari með GOG vorið 2022.

Hann varð bikarmeistari með Nantes á síðustu leiktíð, ásamt því að leika með liðinu í Meistaradeildinni.

Viktor Gísli á að baki 51 A-landsleik þar sem hann hefur skorað eitt mark en hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Noregi í Bergen í apríl árið 2018. Markvörðurinn er á leið á sitt fimmta stórmót með íslenska landsliðinu.

Bjarki Már Elísson – 8

Bjarki Már, sem er 33 ára gamall, er samningsbundinn stórliði Veszprém í Ungverjalandi en hann gekk til liðs við ungverska félagið frá Lemgo í Þýskalandi sumarið 2022.

Hornamaðurinn er uppalinn hjá Fylki í Árbænum en lék einnig með Fram hér á landi áður en hann gekk til liðs við Selfoss árið 2006 þar sem hann lék til ársins 2009. Þaðan lá leiðin til HK þar sem hann varð Íslandsmeistari árið 2012 og markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar tímabilið 2012-13.

Hann gekk til liðs við þýska B-deildarfélagið Eisenach árið 2013 þar sem hann lék í tvö tímabil áður en hann samdi við stórlið Füchse Berlín þar sem hann lék í fjögur tímabil og varð meðal annars heimsmeistari félagsliða í tvígang, 2015 og 2016. Hann samdi við Lemgo í Þýskalandi árið 2019 og varð markakóngur þýsku 1. deildarinnar á sínu fyrsta tímabili með Lemgo. Þá varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2020.

Hann varð ungverskur meistari með Veszprém á síðustu leiktíð og þá varð hann einnig bikarmeistari með liðinu, ásamt því að leika með liðinu í Meistaradeildinni.

Bjarki Már lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Hollandi í Laugardalshöll árið 2012. Alls á hann að baki 107 landsleiki þar sem hann hefur skorað 371 mark en hann er á leið á sitt sjöunda stórmót.

Óðinn Ríkharðsson – 2

Óðinn Þór, sem er 26 ára gamall, er samningsbundinn svissnesku meisturunum í Kadetten en hann er uppalinn hjá HK í Kópavogi.

Hornamaðurinn lék með HK frá 2013-2015 áður en hann gekk til liðs vð Fram þar sem hann lék í eitt tímabil. Þaðan lá leiðin til FH þar sem hann lék frá 2016 til ársins 2018.

Óðinn hélt út í atvinnumennsku árið 2018 þegar hann samdi við GOG í dönsku úrvalsdeildinni en hann lék með liðinu í tvö tímabil áður en hann söðlaði um í Danmörku og samdi við Holstebro.

Hann sneri heim úr atvinnumennsku árið 2021 þegar hann samdi við KA en stoppaði stutt við á Íslandi því seinni hluta tímabilsins 2021-22 gekk hann til liðs við Gummersbach í þýsku B-deildinni á láni frá KA. Leiðin lá svo til Sviss sumarið 2022 þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning en hann varð svissneskur meistari með liðinu á síðustu leiktíð.

Óðinn lék sinn fyrsta A-landsleik gegn gegn Svíþjóð árið 2017 en alls á hann að baki 31 landsleik þar sem hann hefur skorað 91 mark. Evrópumótið í Þýskalandi verður þriðja stórmót hornamannsins.

Sigvaldi Björn Guðjónsson – 22

Sigvaldi, sem er 29 ára gamall, er samningsbundinn Koldstad í Noregi en hann gekk til liðs við norska félagið sumarið 2022 frá pólska stórliðinu Kielce þar sem hann lék í tvö tímabil, frá 2020 til 2022. Hann varð tvívegis Póllandsmeistari með liðinu.

Sigvaldi er uppalinn í HK en hann flutti 12 ára gamall til Danmerkur ásamt fjölskyldu sinni og lék um tíma með Vejle og Bjerringbro/Silkeborg þar í landi. Hann lék með Århus frá 2014 til ársins 2018 þegar hann gekk til liðs við Elverum í Noregi þar sem hann lék í tvö tímabil, frá 2018 tl 2020, en hann varð Noregsmeistari með Elverum árið 2020. Hann varð Noregsmeistari og norskur bikarmeistari með Kolstad á síðustu leiktíð.

Hægri hornamaðurinn lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Noregi í Elverum ári 2017 en alls á hann að baki 65 landsleiki þar sem hann hefur skorað 182 mörk. Evrópumótið í Þýskalandi sem hefst í janúar verður sjötta stórmót Sigvalda.

Stiven Tobar Valencia – 27

Stiven Tobar, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Benfica í portúgölsku 1. deildinni en hann er uppalinn hjá Val á Hlíðarenda.

Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Valsmenn árið 2017 en hann varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2021 og var í lykilhlutverki hjá Valsmönnum tímabilið 2021-22 þegar liðið varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari. Þá var hann valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar sama ár.

Hann gekk til liðs við Benfica frá Val í júní 2023 en hann skrifaði undir tveggja ára samning við portúgalska stórliðið.

Hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Tékklandi í Brno í mars á síðasta ári en alls á hann að baki 8 landsleiki þar sem hann hefur skorað 10 mörk. Evrópumótið í Þýskalandi er fyrsta stórmót Stivens Tobars.