Húsavík Parhúsin sem er verið að reisa við Hraunholt á Húsavík og stéttarfélögin hafa keypt.
Húsavík Parhúsin sem er verið að reisa við Hraunholt á Húsavík og stéttarfélögin hafa keypt. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stéttarfélögin Framsýn og Þingiðn í Þingeyjarsýslum hafa fest kaup á tveimur orlofsíbúðum í parhúsi sem er í byggingu á Húsavík, nánar tiltekið við Hraunholt 22. Félagsmönnum utan Húsavíkur sem þurfa á gistingu að halda vegna veikinda stendur einnig …

Stéttarfélögin Framsýn og Þingiðn í Þingeyjarsýslum hafa fest kaup á tveimur orlofsíbúðum í parhúsi sem er í byggingu á Húsavík, nánar tiltekið við Hraunholt 22.

Félagsmönnum utan Húsavíkur sem þurfa á gistingu að halda vegna veikinda stendur einnig til boða að fá íbúðirnar leigðar þurfi þeir að vera tímabundið nálægt Heilbrigðisstofnun Þingeyinga af heilsufarsástæðum, frá þessu er greint á vef Framsýnar. Ákvörðunin um kaupin var tekin á sameiginlegum félagsfundi félaganna 21. nóvember sl. þar sem tillaga um kaup á íbúðunum var samþykkt samhljóða.

Um er að ræða 118 ferbetra íbúðir með geymslu. Íbúðirnar verða full frágengnar með lóð og upphituðu bílastæði. Verðmatið á hvora íbúð er tæplega 70 milljónir króna. Áætlað er að þær verði tilbúnar til afhendingar í ágústmánuði næstkomandi.

Tilbúnar til leigu í haust

Verktakinn er Ragnar Hjaltested en á vef Framsýnar segir að skrifað verði undir samninga um kaupin á næstu dögum. Hugmyndin er að íbúðirnar standi félagsmönnum til boða frá komandi hausti. Um 60% félagsmanna Framsýnar búa utan Húsavíkur eða tæplega 2.000 félagsmenn, þá eru félagsmenn Þingiðnar einnig dreifðir um félagssvæðið.

Jafnframt er til skoðunar að nota íbúðirnar í skiptum, hluta úr ári, fyrir önnur orlofshús í eigu annarra stéttarfélaga víða um land.

„Slík skipti opna á nýja og áhugaverða möguleika fyrir félagsmenn Þingiðnar og Framsýnar, þannig fengju þér aðgengi að orlofshúsum s.s. á Vestfjörðum, Vesturlandi og á Suðurlandinu í staðinn fyrir orlofsíbúðirnar á Húsavík, sérstaklega yfir sumartímann,“ segir á vef Framsýnar.

Fram kemur einnig að félögin hafi skoðað hvort þau ættu að fjárfesta í orlofshúsum í orlofsbyggðum t.d. á Suðurlandinu í stað þess að fjárfesta í orlofsíbúðum á Húsavík. Eftir skoðun hafi verið samþykkt samhljóða að fjárfesta frekar í íbúðum á Húsavík. Auk þess sé það mun kostnaðarasamara að reka orlofshús í skipulögðum orlofsbyggðum en á Húsavík.