Sellisti Sigurður Halldórsson.
Sellisti Sigurður Halldórsson.
61+1 er yfirskrift tónleika í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar sem haldnir verða í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 14. janúar kl. 16. Um er að ræða portretttónleika af Sigurði Halldórssyni. „Sigurður hefur bókstaflega aldrei verið við eina fjölina …

61+1 er yfirskrift tónleika í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar sem haldnir verða í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 14. janúar kl. 16. Um er að ræða portretttónleika af Sigurði Halldórssyni.

„Sigurður hefur bókstaflega aldrei verið við eina fjölina felldur sem sellóleikari, eða sem sviðslistamaður almennt. Síðustu fjörutíu-og-eitthvað ár hefur hann ekki getað látið margt ósnert í íslensku listalífi, hvort sem það heitir Caput, Voces Thules, Camerarctica, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Þjóðleikhúsið, ­Borgarleikhúsið, Sumartónleikar í Skálholti, Bachsveitin, Nordic Affect, Reykjavík Barokk eða LHÍ.

Nýverið náði Sigurður sex tugum í aldri, nánar tiltekið þann 13. janúar 2023. Ýmis skakkaföll svo sem beinbrot, bankahrun, námslánaafborganir, háir húsnæðisvextir og önnur jafnvel alvarlegri atvik hafa ekki enn gert hann af baki dottinn. Og í tilefni af því verða tónleikar haldnir á Sígildum sunnudögum 14. janúar, þar sem Sigurður fær til liðs við sig samstarfsfólk úr hópi góðra vina og ættingja til að flytja tvo sellókonserta frá 18. öld ásamt nokkrum kammerverkum frá barokktímanum. Á efnisskrá verða sellókonsertar eftir A. Vivaldi og C. Ph. E. Bach auk kammerverka eftir Biber, J.S. Bach og ítölsku 17. aldar tónskáldin G. M. Bonincini, M. Cazzati og G. B. Vitali. Flytjendur með Sigurði eru Hildigunnur Halldórsdóttir, Soko Yoshida, Rut Ingólfsdóttir, Gróa Margrét Valdimarsdóttir og Nathalia Duarte á fiðlur og víólur, Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló, Dean Ferrell á violone, Halldór Bjarki Arnarson á sembal og Sergio Coto á teorbu,“ segir í viðburðarkynningu.