Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson, fv. landsliðs- og atvinnumaður í körfuknattleik, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal

Jón Arnór Stefánsson, fv. landsliðs- og atvinnumaður í körfuknattleik, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal. Stjórn Þjóðarhallar ehf. skipa fimm einstaklingar. Ríki og borg tilnefndu tvo fulltrúa hvort sem sitja í stjórn ásamt formanni. Þau eru Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, Þórey Edda Elísdóttir, Ómar Einarsson og Ólöf Örvarsdóttir. Varamenn eru Högni Haraldsson og Þórhildur Lilja Ólafsdóttir. Fyrsta verkefni stjórnar er að hefja forval fyrir samkeppnisútboð um hönnun og byggingu mannvirkisins.