Lögregla Fjöldi lögreglumanna auk annarra tók þátt í aðgerðum í gær.
Lögregla Fjöldi lögreglumanna auk annarra tók þátt í aðgerðum í gær. — Morgunblaðið/Eggert
Þrír karlmenn voru handteknir á Akureyri í gærmorgun. Tveimur þeirra var sleppt úr haldi en sá þriðji var fluttur til Grikklands vegna upplýsinga um að hann sé liðsmaður Ríkis íslams (ISIS)

Þrír karlmenn voru handteknir á Akureyri í gærmorgun. Tveimur þeirra var sleppt úr haldi en sá þriðji var fluttur til Grikklands vegna upplýsinga um að hann sé liðsmaður Ríkis íslams (ISIS). Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra kom fram að aðgerðir lögreglu hefðu staðið yfir síðan í nóvember í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld, þar á meðal Europol. Aðgerðunum telst nú lokið en rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi.

Tvær húsleitir voru framkvæmdar í kjölfar þess að mennirnir voru handteknir og lagði lögregla hald á farsíma og peninga. Maðurinn sem var ekki sleppt úr haldi á eiginkonu og sex börn á aldrinum 6 mánaða til 16 ára og voru þau flutt til Grikklands með honum. Lenti vélin þar síðdegis í gær.

Fjölskyldan kom til Íslands í september og sótti um alþjóðlega vernd hér á landi en var synjað á þeim forsendum að þau væru með alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Fjölmenn aðgerð

„Mikilvægt þótti að tryggja öryggi og velferð fjölskyldunnar í aðgerðinni í morgun og voru því starfsmenn félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðismenntað starfsfólk ásamt fjölda lögreglumanna á vettvangi,“ segir í tilkynningunni frá embætti ríkislögreglustjóra. Þar kom jafnframt fram að embættið myndi ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.