Norður
♠ 76432
♥ 84
♦ K754
♣ Á5
Vestur
♠ 8
♥ ÁDG1097
♦ 962
♣ 1098
Austur
♠ Á9
♥ 5
♦ DG108
♣ KG7642
Suður
♠ KDG105
♥ K632
♦ Á3
♣ D3
Suður spilar 3♠.
„Stundum þarf að grípa bola á hornunum.“ Gölturinn setti fuglana inn í myndina: Vestur opnar á 2♥ – pass og pass til suðurs, sem segir 2♠. Norður hækkar í 3♠ en suður lætur gott heita þrátt fyrir 15 punkta, enda hjartakóngurinn illa staðsettur. Lauftían út.
„Fljótt á litið eru þetta bara fjórir tapslagir,“ hugsaði Magnús mörgæs upphátt: „Trompás, tveir á hjarta og einn á laufkóng.“
„Ekki gleyma spaðaníunni,“ sagði Óskar ugla. „Ef við drepum á laufás og trompum út rýkur austur upp með ásinn, hirðir á laufkóng og spilar hjarta. Vestur tekur tvo slagi á hjarta, spilar þriðja hjartanu og austur fær slag á spaðaníu.“
„Taka í hornin á bola, sagði karlinn.“ Mörgæsin hafði komið auga á lausnina: „Við tökum á laufás og spilum litlu hjarta frá báðum höndum!“