50 Aron Bjarnason skoraði 12 mörk í 50 deildarleikjum fyrir Blika.
50 Aron Bjarnason skoraði 12 mörk í 50 deildarleikjum fyrir Blika. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason er genginn til liðs við Breiðablik á ný eftir að hafa leikið með Sirius í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú ár. Aron, sem er 28 ára kantmaður, lék áður með Blikum 2017-19 en fór þaðan til Újpest í…

Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason er genginn til liðs við Breiðablik á ný eftir að hafa leikið með Sirius í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú ár. Aron, sem er 28 ára kantmaður, lék áður með Blikum 2017-19 en fór þaðan til Újpest í Ungverjalandi, lék sumarið 2020 með Val og fór síðan til Svíþjóðar. Áður lék hann með Þrótti R., Fram og ÍBV. Aron hefur leikið 222 deildaleiki á ferlinum, heima og erlendis, og skorað í þeim 37 mörk.