— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tveir létust í umferðarslysi sem varð á þjóðvegi 1 laust fyrir klukkan tíu í gærmorgun. Slysið varð skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli þegar tvær bifreiðar skullu saman. Mennirnir voru báðir erlendir ferðamenn og voru þeir úrskurðaðir látnir á vettvangi

Tveir létust í umferðarslysi sem varð á þjóðvegi 1 laust fyrir klukkan tíu í gærmorgun. Slysið varð skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli þegar tvær bifreiðar skullu saman. Mennirnir voru báðir erlendir ferðamenn og voru þeir úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Sex voru fluttir til aðhlynningar á Landspítalann í Fossvogi með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Lentu þyrlurnar við spítalann upp úr klukkan 13 í gær. Á myndinni má sjá þegar tekið var á móti hinum slösuðu við spítalann.

Fjölmennt lið viðbragðsaðila kom að aðgerðum á vettvangi. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi kom fram að rannsókn málsins væri á frumstigi. Þjóðvegi 1 var lokað á meðan vinna á vettvangi stóð yfir, en umferð var beint um hjáleið við Skaftafell.