Hrafnkell Sigurðsson
Hrafnkell Sigurðsson
Ár•farvegur nefnist samsýning sem opnuð verður í Þulu í Marshallhúsinu í dag kl. 17. Þar sýna verk sín þau Kristinn E. Hrafnsson, Anna Maggý, Hrafnkell Sigurðsson og Vikram Pradhan

Ár•farvegur nefnist samsýning sem opnuð verður í Þulu í Marshallhúsinu í dag kl. 17. Þar sýna verk sín þau Kristinn E. Hrafnsson, Anna Maggý, Hrafnkell Sigurðsson og Vikram Pradhan. „Sýningin Ár•farvegur býður gestum að stíga inn í heim þar sem hið stóra og smáa mætist, í tíma og rúmi hinnar mannlegu og jarðlegu ævi. Árþúsundir og augnablik tala saman og vekja upp spurningar um samband mannsins við jörðina sem hann býr á,“ segir í kynningu.