Asrunn í essinu sínu á sviði.
Asrunn í essinu sínu á sviði. — Ljósmynd/Fabien Holbert
Goðafræði Franski nývíkingadúettinn Eihwar vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu en hann kom eins og stormsveipur inn í tónlistarlíf Evrópu á nýliðnu ári með því sem kallað hefur verið grimm danstónlist með höfuðáherslu á trumbuslátt

Goðafræði Franski nývíkingadúettinn Eihwar vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu en hann kom eins og stormsveipur inn í tónlistarlíf Evrópu á nýliðnu ári með því sem kallað hefur verið grimm danstónlist með höfuðáherslu á trumbuslátt. Sjálf kalla þau það víkingastríðstrans. Eihwar er með djúpar rætur í norrænni goðafræði og þegar hafa komið út lög á borð við Berserkr, Fenrir, Ragnarök og Skjaldmö. Eihwar mun túra grimmt á árinu og verður meðal annars á Graf Zeppelin-hátíðinni í maí og Hellfest í júní. Lítið sem ekkert er vitað um meðlimi Eihwar sem koma fram með andlitsmálningu og grímur en þau kalla sig Asrunn og Mark. Spennandi, ekki satt?