Michelle Yeoh með Justin Chien og Sam Song Li.
Michelle Yeoh með Justin Chien og Sam Song Li. — AFP/Robyn Beck
Glæpir Malasíska skapgerðarleikkonan Michelle Yeoh fer með aðalhlutverkið í nýjum spennuþáttum með spéívafi á Netflix, The Brothers Sun eða Sólbræður. Eldri sonur hennar elst upp hjá gangsternum föður sínum í Taipei en sá yngri hjá móður sinni í Los Angeles

Glæpir Malasíska skapgerðarleikkonan Michelle Yeoh fer með aðalhlutverkið í nýjum spennuþáttum með spéívafi á Netflix, The Brothers Sun eða Sólbræður. Eldri sonur hennar elst upp hjá gangsternum föður sínum í Taipei en sá yngri hjá móður sinni í Los Angeles. Þegar faðirinn er myrtur flýr eldri sonurinn heim og þá er ekkert annað í stöðunni en að greina yngri syninum frá fortíð fjölskyldunnar og hvað til hans friðar heyrir. Yngri sonurinn hefur hvorki áhuga né þekkingu á því að vera glæpon en á hann einhverra kosta völ?